Ađalvalmynd

heyheyhey

Endilega kvitta fyrir komuna, ţarf ekki ađ segja neitt merkilegt, bara gaman ađ sjá hverjir eru ađ lesa :)

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Arnar Sigurgeirsson
  • Stađur: Akranes
  • Kyn: kk
  • Atvinna: Nemi í uppeldis og menntunarfrćđi viđ HÍ (og nei ţetta er ekki kennaramenntun :) )
  • Hjúskaparstađa: Hleyp einn

Get a good job with more pay and you're okay.

18. maí 2008 klukkan 15:36
Alltaf lofa ég bloggfærslum sem skila sér síðan seint og illa. Ég veit ekki alveg hvað ég á að blogga um, eeeeen við skulum sjá hverju ég get ælt út úr mér.
Ég er byrjaður að vinna á fullu í Hobby Room (www.hobbyroom.is) og ætla að taka mér smá frí frá skólanum í haust. Ég veit eiginlega ekki alveg hver starfstitillinn minn er, en ég heyr beint undir framkvæmdastjórann og sé meira og minna um rekstur á búðinni og sölu. Það er opið alla daga frá 11 til 19, ég vinn aðrahverja helgi og er í búðinni annan hvern virkan dag, hinir virku dagarnir fara í "önnur verkefni". Mér lýst bara nokkuð vel á þetta enda mjög flott búð. Það verður samt svoldið einmannalegt hérna stundum, enda er maður yfirleitt einn í búðinni, nema þegar það eru kúnnari í henni auðvitað.
Annars eru öll próf búin og búinn að skila öllum verkefnum, svo verður maður bara að dunda sér við BA-ritgerðina í sumar með vinnunni, svona svo lengi sem ég fæ öll gögnin og það allt saman.
Svo er það með nafnið á blessaða gítarnum; ég get ekki betur séð en að "Dís" hafi sigrað "Hönnu Rokk" naumlega, og því verður gítarinn hér með þekktur sem "Dísin", gaman af því.
Annars er lítið að frétta, ætla að reyna að vera duglegri við að blogga í sumar, enda oft dauður tími hjá manni í vinnunni, sérstaklega ef maður drífur sig í að klára það sem maður þarf að gera yfir daginn snemma.

nóg í bili, tata
Arnar Sigurgeirsson

While my guitar gently weeps!

29. apríl 2008 klukkan 15:29
Kominn með nýja gítar og vantar nafn á "hana", það er s.s. komin könnun sem ég hvet ykkur endilega til að taka þátt í...... plííííís
Betra blogg síðar, ég lofa.
ps. (Bóbóslef og Agga eru ekki raunverulegir kostir og verða því ekki fyrir valinu, þetta er bara til að halda Agga góðum)

G&L ASAT Cherryburst
Arnar Sigurgeirsson

Sér fćrsla fyrir Jóhönnu E

23. mars 2008 klukkan 03:57

alveg eins og þú baðst um........ Til hamingju með daginn Glottandi

Arnar Sigurgeirsson

Coming back to life

17. mars 2008 klukkan 14:17
Blogg segiði.......
Ég og fólk hefur kannski áttað sig á miðað við ástandið á blogginu er nýtt ár búið að einkennast af leti sem er ekki mjög sniðugt þegar maður hefur nóg að gera. Ég er að spá í að hafa þessa færslu í punktaformi og tala um hvað hefur verið að gerast og hvað sé í gangi þessa stundina.

Ég er loksins núna að byrja á BA ritgerðina, fékk gögnin sem ég þurfti í hendurnar núna rétt fyrir helgi.
Málstofan í skólanum er alveg að gera mig geðveikan en það fer að klárast fljótlega.

Ég og Óli Örn erum byrjaðir að spila aftur, spiluðum á Áslák í mosó á laugadaginn og erum að spila á Skrúðgarðinum hérna á skaganum á miðvikudaginn næstkomandi og það er SKILDUMÆTING, frídaginn eftir og brjálað stuð á okkur. Ef þið eruð með óskalög er líklegra að við spilum þau ef þið hendið þeim í comment Glottandi.

Það var árshátið hjá nemendafélaginu um daginn sem var alveg brilliant og svo Poolmót síðastliðinn föstudag þar sem ég tapaði fyrir báðum stelpunum sem ég spilaði við, en VANN Sigþór hins vegar ÞRISVAR þrátt fyrir að hann hafi mætti með sinn eigin kjuða og kunnað reglurnar!

Fór í sumarbústað með í febrúar með fullt af fólki, nánartiltekið; BB, Sindra, Ásdísi, Sigþóri, Ingunni Heiðu, Sævari og Ínu. Alveg frábær helgi í alla staði. Fór svo á tónleika með Hayseed Dixie á sunnudeginu, þvílík snilld! Einhverjir bestu tónleikar sem ég hef farið á. Ef við þið vitið ekki hvaða hljómsveit þetta er mæli ég með youtube.

Hljómsveitin spilaði á balli hjá NFFA í byrjun febrúar við góðar undirtektir, uppklapp og læti sem við fengum þó ekki að gera fyrir ballgesti þar sem DJ'arnir vildu komast að. Það voru nokkrir eftirmálar eftir þetta ball sem skrifast alfarið á ákveðinn mann sem var klárlega ekki starfi sínu vaxinn en það leystist allt saman á endanum.

Hljómsveitin er loksins komin með pening til að byrja á stúdíóupptökum og það verður gaman að sjá hvernig það fer, vonandi getum við klárað 3-4 lög áður en langt líður á sumarið.

Ég er hálf veikur þessa stundina, í fjórða skipti í vetur og alltaf sama pestin, ekki beint skemmtilegt.

Jæja, segjum þetta gott í bili, ég lofa að reyna að vera duglegri við að blogga.
Munið bara að taka miðvikudaginn frá og kíkið endilega á Skrúðgarðinn, ég ábyrgist fyrsta flokks skemmtun og það ókeypis. Ekkert betra en að setjast niður á notalegu kaffihúsi með góðu fólki og hlusta á góða tónlist. Ég auglýsi síðar hvenær við byrjum að spila.
Arnar Sigurgeirsson

Gleđileg Jól!

24. desember 2007 klukkan 13:22
Ég vill bara óska öllum gleðilegra jóla, hafið það sem allra best yfir hátíðarnar Hlæjandi

Með jólakveðju, Arnar
Arnar Sigurgeirsson

And I am you and what I see is me.

04. desember 2007 klukkan 21:55

Jæja gott fólk, loksins blogg! Þetta fer að verða mánaðarlegur viðburður með þessu áframhaldi. Það hefur svosem ýmislegt gerst síðan ég bloggaði síðast: Föstudaginn 17. nóv hittumst við nokkur heima hjá Ingunni Heiðu og Sigþóri og elduðum og höfðum það gott, Breiðin opnaði aftur eftir langt hlé, ég rúllaði yfir skólafélagana í keilu og margt fleira. Ég fór líka á jólahlaðborð á Argentínu með stórfjölskyldunni í tilefni afmælis afa, og það var alveg geggjað!
Undanfarið hefur megnið af mínum tíma farið í ritgerðarvinnu og núna tekur próflestur við, ég er ekkert að missa mig af spenningi yfir því. Ég fer reyndar bara í eitt próf núna en lesefnið fyrir það er alveg með eindæmum óáhugavert, en slíkt gerist þegar maður situr í áfanga sem maður tekur að því að það er ekkert annað í boði.

Hérna heima er búið að skreyta húsið hátt og lágt, jólin eru greinilega að nálgast. Það þýðir að maður þarf að fara að huga að jólagjöfum sem þýðir að maður verður þónokkuð fátækari en maður er núna, en það er vel þess virði ef maður getur glatt fólkHlæjandi.

Annars verð ég að segja að mér finnst vælið, já vælið í vinstri-grænum yfir því að það eigi að stytta ræðutíma á alþingi niður í 15 mínútur alveg magnað. Ég tek bara undir með Helga Hjörvari (held að það hafir verið hann), þeir sem ekki geta komið skoðun sinni á framfarir á 15 mín ættu að fara á endurmenntunarnámskeið í ræðuhöldum. Langar og leiðinlegar ræður gera ekkert gagn, þvert á móti draga þær frekar úr áhuga fólks á því sem gerist í þinginu.
Annað mál sem kom upp í fréttum um daginn, trúboð í skólum. Skólar eru fyrst og fremst menntastofnanir, menntastofnanir sem eru byggðar á staðreyndum og vísindum. Það á að kenna öll trúarbrögð út frá fræðilegu sjónarmiði, í svipuðu formi og sögukennsla. Trúboð eiga ekki heima í skólum heldur utan skólans og aðeins ef ábyrgðarmaður einstaks barns og barnið sjálft kýs að hlýða á slíkan boðskap. Það er trúfrelsi á Íslandi og það hafa allir rétt á því að aðhyllast þeim trúarbrögðum sem þeir kjósa. Trúarbrögð eiga enga stoð í vísindum og því á ekki að predika þau sem heilagan sannleik í menntastofnunum. Það er eins og að kenna fólki að tala við hina framliðnu í sálfræðiskori í HÍ, það væri fáránlegt.

Læt þetta duga í bili, segið endilega hvað ykkur finnst Glottandi

Arnar Sigurgeirsson

Hello. Is there anybody in there?

12. nóvember 2007 klukkan 19:42

Nenni ekki að blogga í augnablikinu, en ákvað hinsvegra að koma af stað undirskriftalista sem þið hafið öll áhuga á að kvitta undir. Kem með almennilegt blogg fljótlega.

Við undirrituð skorum hér með að lúðann hana systur mína til að detta í það með okkur hinum vitleysingunum í uppeldis- og menntunarfræði á próflokadjamminu í desember á þessu ári. Gerð er krafa um lágmark 6 drykki á tímabilinu 17:00 til 5:00 daginn eftir. Einn drykkur telst vera eitthvað af eftirtöldu; 275ml af Breezer eða sambærilegu, eitt skot eða einn einfaldur (30-40%) í óáfengan drykk.

Arnar Sigurgeirsson

Speak to me

23. október 2007 klukkan 17:50
Ég ætla að byrja á að þakka kærlega fyrir allar afmælihamingjuóskirnar Svalur.
Annars hef ég ekki mikið til að blogga um en ég bjó þó til áhugaverðan lista, njótið vel!


30 ástæður fyrir því að systir mín er LÚÐI

·         spilar á þverflautu  - lúði!

·         er í lúðasveit – lúði!

·         hlustar á klassíska tónlist – lúði!

·         stillir sætið sitt eins og gömul kelling þegar hún keyrir – lúði!

·         kann ekki að leggja – lúði!

·         er ekki bindindins manneskja en drekkur samt ekki – lúði!

·         farin að vagga eftir 2 breezera – lúði!

·         fílar josh groban – lúði!

·         gengur í mislitum sokkum – lúði!

·         finnst endarnir besti hlutinn af pizzu – lúði!

·         svalast íþróttin sem hún stundar er badminton  - lúði!

·         var svo ófrumleg í námsvali að hún elti mig í u&m– lúði!

·         hefur aldrei komið drukkin úr vísindaferð – lúði!

·         hún er með tannréttingar góm – lúði!

·         hefur farið í „bandcamp“ – lúði!

·         kláraði fjölbraut á 3 árum – lúði!

·         horfir á nágranna – lúði!

·         leikur sér í sims2 – lúði!

·         finnst ostur ekki góður – lúði!

·         hélt að textinn í Vöðvastæltur með Landi og sonum væri: „blómin ráðast á mig“ – lúði!

·         er alltaf í tvennum vettlingum ef það er kalt – lúði!

·         þarf að fasta í fleiri klukkutíma áður en hún fer í ræktina -  lúði!

·         getur ekki pissað í peysu – lúði! (sagði mér þetta til að koma í veg fyrir misskilning)

·         getur ekki pissað með gleraugun á nefnu – lúði! (mér þetta til að koma í veg fyrir misskilning)

·         flóknast rétturinn sem hún kann að elda er ostapasta – lúði!

·         man öll bílnúmer – lúði!

·         borðar ekki „creamy“ sósur – lúði!

·         fílar westlife – lúði!

·         er með karlmannlegri leggi en Viðar frændi sinn (meira skot á hann but hey!)– lúði!

·         pikkaði þennan lista inn fyrir mig – lúði!

Látið mig endilega vita ef ég er að gleyma einhverju Hlæjandi og haldið áfram að vera duglega að kommenta!

Arnar Sigurgeirsson

The sun is the same in the relative way, but you're older.

16. október 2007 klukkan 12:21

Já krakkar mínir, talan hækkaði um einn í nótt, 23 ára..... úff, maður eldist hratt. Hamingjuóskunum er búið að rigna yfir mig frá miðnætti og ég vill bara þakka kærlega fyrir það Hlæjandi.
Annars er svosem ekki mikið að frétta; októberfest á föstudaginn sem var gaman og svo var pókerkvöld á laugardaginn heima hjá Mána og ég fór með sigur af hólmi, að sjálfsögðu Svalur. Ég er sem sagt búinn að vinna fjórum sinnum í röð í pókerklúbbnum og ég er farinn að vera hræddur um að ég fái ekkert að vera með ef þetta heldur svona áfram, spurning hvort ég leyfi ekki einhverjum öðrum að vinna næst? Saklaus Ég fékk skáp í afmælisgjöf frá mömmu og pabba og í kjölfarið var herbergið tekið í gegn og ómældu magni af drasli hennt! og nú kemst allt fyrir.
Ég er byrjaður að kenna á gítar og er með tvo nemendur; Dagur og Sigurjón, og það er mikið efni þar á ferð, rokkstjörnur framtíðarinnar! Gaman að geta miðlað aðeins af því sem maður kann, mjög gefandi.Brosandi

Annars er ég mjög feginn að vera ekki Reykvíkingur núna...... 4 flokka stjórn með Björn Inga og Margréti Sverrisdóttur innanborðs; Good luck with that! Ég var nú aldrei hrifinn af Villa fv.borgarstjóra og hann er náttúrulega búinn að skíta upp á Þak í þessu blessaða REI-máli en það er flest skárra en staðan eins og hún er núna. Bjarni Ármans fær samt stóran plús í kladdann, búinn að stórgræða á fyrirtæki sem hefur ekkert gert, það er náttúrulega bara snilld. Mæli með að hann verði settur í að sjá um fjármál ríkisins, hann gæti örugglega losað okkur við allar okkar skuldir á viku Ullandi.

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, verið dugleg að kommenta!
Hafið það sem allra best! Hlæjandi

Arnar Sigurgeirsson

High Hopes

02. október 2007 klukkan 12:36
When I was a kid, I used to have an imaginary friend. I thought he went everywhere with me. I could talk to him and he could hear me, and he could grant me wishes and stuff too. But then I grew up, and stopped going to church.       "Jimmy Carr"

Annars er það helst í fréttum að Britney hefur misst forræði yfir börnum sínum........ telst það fréttnæmt? Er það bara ég eða er krónísk gúrkutíð í fréttunum? Ég held að það væri alveg óhætt að stytta fréttatímana niðrí 10 mín flesta daga.
Annars fannst mér áhugaverð frétt um hópslagsmál í Húsavík á milli heimamanna og útlendinga. Ekki var talið að málið tengdist rasisma eða þjóðerniskennd á nokkurn hátt....... really???? Var það bara tilviljunn að útlendingarnir hópuðust saman annars vegar og íslendingar hins vegar? Ég bara spyr! Annar finnst mér þessi umræða um erlenda verkamenn á íslandi mjög áhugaverð. Sérstaklega fyrir þær sakir að um leið og einhver ræðir þetta opinberlega með þá skoðun að það þurfi eitthvað að skoða þessi mál betur og athuga hvort það sé ástæða til að setja einhverjar hömlur á innflutning verkafólks er sá hinn sami stimplaður rasisti og þjóðernissinni. Talað er um að við séum ekki nógu dugleg við að kenna þeim íslensku og aðlaga þau samfélaginu. Ég hef það hins vegar eftir pólskri konum sem var mikið uppí vinnu í sumar að túlka fyrir pólverja að bara á Akranesi séu hundruðir austur evrópubúa sem eru hvergi skráðir, s.s. ólöglegt vinnuafl og að gífurlega stór hluti þeirra útlendinga sem eru að vinna hér hafi engan áhuga á að læra íslensku eða aðlagast okkar samfélagi. Ég sá það hins vegar í sumar að þetta fólk getur vel lært íslensku og voru margir sem voru farnir að tala fína íslensku eftir tiltörulega stuttann tíma en aðrir ekki stakt orð hvorki á íslensku né ensku. Í útvarpinu heyrði ég svo svoldið sem kom mér pínulítið á óvart, pólsk kona búsett í póllandi sem hafi verið á íslandi í mörg ár hringdi inn og sagði að stór hluti pólverja sem hér væru væru á sakaskrá og hefðu afplánað dóma fyrir ýmis brot, þar á meðal ofbeldisbrot. Þá fór maður óneitanlega að hugsa, fá allir sem vilja að koma hingað og vinna? Er það bara ég sem geri athugasemd við það að dæmdir glæpamenn fái að koma til landsins? Sérstaklega í ljós þess að hlutfall erlendra fanga miðað við hlutfall útlendinga á Íslandi er skuggalegt og svo hefur VÍS gefið út að í 20% eru þeir sem aka undir áhrifum útlendingar (http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item164802/).

Hvað finnst fólki????
Arnar Sigurgeirsson

Leit

Auglýsing

Könnun

Hvađ á nýji gítarinn ađ heita?

Afmćli

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...